Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

27. júlí 2008 klukkan 23:55


Þegar ég var 12 ára voru þau uppáhalds. Og þau áttu líka bæði afmæli sama dag og ég og það var mest kúl!

Ég er búin að vera að vinna svo mikið undanfarið að í morgun var ég hálfnuð að labba í vinnuna þegar ég fattaði að ég gleymdi að klæða mig í skó og var ennþá í inniskónum mínum... en ég fæ þrjá frídaga áður en ég klára sumarvinnuna og flyt suður. Þá verður tjillað og farið á tónleika á fimmtudaginn næsta og tjúttað og drullumallað í Mýrarboltanum um Verslunarmannahelgina.

En sumarið hefur ekki verið alslæmt þrátt fyrir eintóma vinnu. Fimmtugur franskur maður kom til mín um daginn og spurði "Can you pleace watch me to take a shower?" Ég hélt eitt andartak að ég væri komin á sjens en fattaði svo að frakkar eru rosalega lélegir í ensku og að hann var bara pínu áttavilltur... Svo var fermingar reúníon, masterklass og skreppitúr til Reykjavíkur þar sem ég píanónördaðist með hvítvín í annari og annað hvítvín í hinni og stelputjúttaðist svo með eldamensku, gítarleik, dansleik og fullt fullt af Mojito a la Telma... gaman gaman :)
Og svo verður líka gaman að fá útborgað.




Hafdís Pálsdóttir
4 athugasemdir

Bang bang

13. júlí 2008 klukkan 22:34
Ég asnaðist til að spurja Tinnu hvað gerðist ef maður er skotinn. Þá þarf maður að segja nokkur orð sem lýsa lífi manns akkúrat þá og fyrst ég var að forvitnast þá á ég að gera það...  Vinna, þreyta, tilhlökkun, gleði, svefnleysi, skipulagning

Hananú
Hafdís Pálsdóttir
1 athugasemd