31. mars 2008 klukkan 23:29
Ég fékk loksins páskaeggið mitt :)
Vúbbí
En ég er búin að borða yfir mig af súkkulaði núna... af fjárhagslegum ástæðum hef ég ekki borðað nammi í fleiri fleiri vikur og líkaminn minn fékk þetta mega sjokk þegar ég borðaði næstum því allt sem var inni í Bónuspáskaeggi númer 5 sem mamma sendi mér fyrir rúmum þrem vikum og ég fékk í dag... það var ekki æft mikið í dag, bara hangið heima í náttfötunum og borðað páskaegg og horft á teiknimyndir. Eins og páskdagur í gamla daga þegar ég var lítil...
Hafdís Pálsdóttir
24. mars 2008 klukkan 23:55
Góðir vinir, ódýr bjór, frábær borg, snjór á ströndinni, skemmtilegt fólk, fyndið tungumál... Þetta var góð vika í Hamburg :)
Ég missti mig samt dálítið í nótnabúðinni og eyddi 90 evrum í nótur og annað tónlistardót. Jan þurfti að skilja mig eftir og koma að ná í mig hálftíma seinna og draga mig út... En ég fann eina mjög áhugaverða bók. Hún heitir
Beethoven´s kiss: Pianism, perversion and the mastery of desire. Ég held að kaflinn
The sexual virtuoso verði einstaklega áhugaverður. Tíhíhí...
Það er verið að reyna að sannfæra mig til að koma til Hamburg þegar ég fer í master. Rökin sem ég fékk fyrir því voru meðal annars að ég tæki mig svo vel út með bjór í hendinni að ég myndi smellpassa inn hjá þjóverjum, og af því að mér finnst kartöflur góðar þá verð ég að minnsta kosti að koma til Þýskalands ef ekki Hamburg, og auðvitað af því að ég þekki fólk þar...
Ég ætla að skella inn nokkrum vel völdum myndum á fésbókina og koma mér svo í háttinn. Ég hef bara tvo daga til að læra lögin sem ég á að kunna á spilameðballettdönsurum námskeiðinu í Stavanger á fimmtudaginn... vúhú! :)
Hafdís Pálsdóttir
15. mars 2008 klukkan 14:29
Í gær þurft ég að selja hinn fótlegginn á mér og sé fram á að þurfa að selja hitt nýrað og jafnvel handleggina næst en ætla að reyna að fresta því eins lengi og ég get út af píanóspilinu og þess háttar... Ástæðan fyrir þessu er sú að krónan er að missa vitið. Norska krónan er komin hátt upp í 14 krónur og evran er um 111 krónur... sjittafokk
Allt húsið var internetlaust þegar ég kom heim í gær eftir langan dag í skólanum og mikið verslunarvesen og ég vissi ekki hvað ég átti að gera af mér... ég er orðin svo háð netinu að það tók mig 15 mínútur að jafna mig og ákveða að það væri góð hugmynd að lesa góða bók í staðin. Þetta hefði ekki komið fyrir fyrir nokkrum árum, þá hefði afslappið mitt verið að lesa bók löngu áður en það var að hanga á netinu... En ég elska internetið. Allir vinir mínir búa þar.
Hafdís Pálsdóttir
08. mars 2008 klukkan 11:18
Hafdís Pálsdóttir
04. mars 2008 klukkan 23:28
Ég skellti inn nokkrum myndum frá helginni. Það var room to room race hérna á vistinni. Við vorum í 3-5 manna liðum og hvert lið átti að vera í búning, með drykk og leik (ekki verra ef það var drykkjuleikur) Svo var farið á milli herbergja og brugðið á leik og smakkað nýjan drykk... voða gaman :)

Þetta var liðið mitt... mér finnst að við hefðum átt að vinna en dómaranum fannst þessir flottari.

Teenage mutant ninja turtles!

Brjálaður ítali reif utanaf mér kjólinn fyrir utan síðasta herbergið... passa sig á ofvirkum drukknum gaurum sem heita Fabio þegar maður er klæddur í álpappír!
Svo setti ég fleiri myndir
hér ef einhver er forvitinn og ekki búinn að kíkja á fésbókina :)
Hafdís Pálsdóttir
01. mars 2008 klukkan 11:23
Halldóra frænka átti litla
stelpu í gær, þann 29.febrúar :)
Gleði gleði :)
Þetta er nú meiri afmælistíðin... Búið að vera afmæli eftir afmæli allan febrúar! Og bara núna undanfarna daga er afmæli á hverjum degi. Sandra systir 27. Arent hefði átt afmæli 28. Litla hennar Halldóru fæddist 29. Kristján bróðir á afmæli í dag og Sigrún á morgun! Maður hefur varla undan við að óska fólki til hamingju með afmælið... en það er bara stuð og gleðiefni :)
Hafdís Pálsdóttir