28. desember 2007 klukkan 05:02
Ég bað jólasveininn um snjó í jólagjöf og fékk aldeilis ósk mína uppfyllta. Þetta var nú ekki alveg eins mikið og í gamla daga en á þorláksmessu, þegar húsið var farið að anga af skötulykt og yngra fólkið á heimilinu búið að fara út í sjoppu og ná sér í sjoppumat, þá byrjaði að snjóa á fullu. Ég er glöð. Þótt að rigningin komi örugglega á helginni og taki allan snjóinn í burtu og skilji bara eftir sliddu og vesen... en er það ekk bara ekta íslenskt?
Ég fékk líka fleira í jólagjöf fyrir utan snjóinn. Ég fékk pils, tvenn pör af leggings, tvær bækur, eina dvd mynd, allskonar fallegt skraut, baðdót og fleira...
Í fyrramálið fer ég suður og verð þar þangað til 14.janúar. Ég fékk ekki flug út til Noregs fyrr en þá. En það er fínt, þá fæ ég bara lengra jólafrí og get hitt fleira fólk og oftar og æft mig í Listaháskólanum og fengið tíma hjá Peter.
Hafdís Pálsdóttir
21. desember 2007 klukkan 19:37
Hafdís Pálsdóttir
20. desember 2007 klukkan 03:37
Ég hef ekki sofið í nokkra daga. Kannski klukkutíma hér, fjörtíu mínútur þar og tvo tíma einhversstaðar í lestum, flugvélum og hinum ýmsu sófum og sætum hér og þar. En núna er ég aldeilis búin að vinna það upp. Ég svaf alveg 13 tíma síðustu nótt og sofnaði yfir sjónvarpinu í hvert skipti sem ég kom mér vel fyrir í sófanum... En í kjölfarið er ég enn og aftur andvaka. Ég er fíbbl.
En það er frábært að vera komin aftur heim.
Pabbi sagði við mig um daginn að ef mig færi að dreyma á útlensku þá ætti ég að drífa mig heim, svo þetta var víst orðið tímabært... Frida gisti hjá mér eitt kvöldið og hún sagði að ég er víst farin að tala upp úr svefni á ensku og norsku.
Hafdís Pálsdóttir
15. desember 2007 klukkan 02:01
En sú gleði. En sú hamingja.
Á miðvikudaginn fór ég í síðasta spilatímann minn fyrir jól og skilaði riterðinni minni. Á fimmtudaginn spilaði ég undir í söngprófi og var þar með komin í jólafrí. Ég fór heim og svaf allan daginn til að vinna upp margar svefnlausar nætur, fór svo út um kvöldið og átti súrsætt trall með hinum skiptinemunum. Það var rosalega gaman hjá okkur en annað slagið þurfti einhver að segja þvoglumælt og með tárin í augunum "I am going to miss you soooooo much!!!"
Núna er ég bara að kaupa jólagjafir og flytja. Ég var víst of sein að láta nemendagarða fólkið vita að ég ætlaði að vera aðra önn og það var búið að leigja út herbergið mitt. En ég fæ fínt herbergi nær tónlistarskólanum og verð með norska söngkonu sem ég þekki úr skólanum sem meðleigjanda... þetta verður þá fimmta herbergið mitt á sex önnum. Sjötta ef ég tel með herbergið mitt heima á Ísafirði með, ég var þar eitt sumar...
Ég náði mér í 101 jólalag á netinu... þar á meðal má finna Hókó Pókí. Ekki vissi ég að það væri jólalag. En ég er komin í dúndur jólaskap! Vantar bara snjóinn og fólkið mitt...
Hafdís Pálsdóttir
08. desember 2007 klukkan 03:22
Ojbara!
Ég var búin að gleyma hvað það er ógeðlsegt að koma heim og anga öll af reykingafýlu. Ég stoppaði stutt í þrefaldri afmælisveislu eftir að hafa verið í matarboði hjá píanókennaranum mínum í kvöld. Ég mætti í afmælisveisluna um miðnætti og labbaði inn í reykský, bjórslettur og hópur af ölvuðu fólki kepptist um að fá að faðma mig... faðmlögin voru skemmtileg, ég vandist reyknum fljótlega og dansaði framhjá öllum bjórslettunum. En núna er ég komin heim og er grínlaust orðið óglatt af því að ég lykta eins og hafi stungið mér ofan í bjórlaug og þurkkað mér svo með því að velta mér upp úr risastórum öskubakka... Ég ætla í sturtu. Ef ég fer að sofa svona þá fæ ég bara martraðir og verð þunn þrátt fyrir að ég hafi ekki verið að drekka :p
Hefur það komið fyrir ykkur að jörðin hverfur bara bókstaflega undan fótunum á ykkur? Það kom fyrir mig áðan. Ég var að hlaupa yfir í partýið, sem var bara hinumegin við myrkvað bílastæðið, þegar ég er skyndilega að rúlla niður innkeyrslu sem fer inn í kjallarann á húsinu mínu og veit hvorki upp né niður. Sem betur fer slapp ég með örfáa marbletti og eitt sár og enginn var nálægt til að sjá mig hoppa ofan í innkeyrsluna og rúlla þar um með kjólinn upp yfir haus...
Hafdís Pálsdóttir
06. desember 2007 klukkan 22:16
Ég er búin að vera inni í allan dag að reyna að skrifa ritgerð... Takmarkið var að klára að punkta hjá mér og þýða það yfir á íslensku og vonandi byrja að setja þetta allt saman. Ég er búin að skrifa þrjár línur, pirra mig á því hvað höfundur bókarinnar sem ég er að styðjast við flækir allt sem hann er að segja, hanga á youtube að skoða píanista, lesa fyndnu bókina sm mamma sendi mér, leggja mig, elda kjúkling og þvo þvott... Eins og svo margir aðrir námsmenn þá finn ég mér alltaf eitthvað annað að gera en það sem ég á að vera að gera. Á morgun fer ég á bókasafnið og skrifa þar...
Þegar ég var að hanga á youtube og skoða píanista rakst ég á komment sem var í aðalatriðum að tónlist væri flókið listform sem hæfileikalausir hálfvitar eru búnir að ræna frá alvöru listamönnum sem eru að semja. Að Carnagie Hall hafi verið byggt fyrir tónskáld en ekki hermikrákur sem eru að gera það sama aftur og aftur. Það að líkja eftir Liszt og gera gys að sinfóníum Beethovens væri ekki list, klassískir fæðingarháfvitar skipu engu máli. Svo talaði hann fram og til baka um mann sem heitir Richard Kastle og hvað hann væri frábær og bestur og algjört æði... ég klikkaði á nokkra takka og fann þetta vídjó...
piff... hrokagikkur og hálfviti!
Hann er með fáránlegar yfirlýsingar og ég fékk kjánahroll við að sjá hann í leðurdressinu og setja á sig sólgleraugun... en ég ætla nú ekki að vera að eyða meiri orku í að pirra mig á honum. Greyið hann að vera bjáni...
Piff og hananú
Hafdís Pálsdóttir
06. desember 2007 klukkan 10:36
Ég er búin að breyta fluginu mínu og ætla að koma fjórum dögum fyrr heim!
Ég átti upphaflega að koma til landsins 21.des og til Ísafjarðar 22.des en ég hringdi í flugfélagið og breytti miðanum þannig að ég lendi á Íslandi 17.des klukkan 15:45 og lendi á Ísafirði 16:00 18.des.
Ef einhver vill hitta mig á höfuðborgarsvæðinu á milli 15:45 þann 17.des og 14:45 18.des þá er um að gera að hafa samband... nema ég týndi símakortinu mínu svo ég er ekki með íslenska símann minn. En ég redda því einhvernvegin...
Ég hlakka svo til að koma heim í JÓLAFRÍ!!!
VÚHÚ :)
Hafdís Pálsdóttir
03. desember 2007 klukkan 00:43
Hafdís Pálsdóttir
01. desember 2007 klukkan 17:22
| |
What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3) created with QuizFarm.com |
| You scored as Theater You should be a Theater major! Like a bohemian actress, you are seasoned and confident and not afraid to express yourself!
Art | | 100% | Theater | | 100% | Dance | | 100% | Sociology | | 92% | Philosophy | | 92% | Linguistics | | 92% | Journalism | | 83% | Mathematics | | 75% | English | | 75% | Psychology | | 67% | Anthropology | | 67% | Biology | | 58% | Engineering | | 42% | Chemistry | | 17% |
|
Hafdís Pálsdóttir
01. desember 2007 klukkan 03:55
Ég var að skella inn myndum. Ég setti nýlega líka eitthvað af þeim inn á facebook...
Ég fór á julebord hjá tónlistardeildinni í gærkvöldi og borðaði fullt af kjöti, drakk aðeins of mikið vín og hitti fullt af nýju fólki... Það var gaman.
Ég fékk samt eina furðulegustu pikköpp línu sem ég hef fengið lengi. Við vorum að tala um einhverja þýska stelpu og eftirfarandi samtal átti sér stað á milli mín og eins stráksins þarna.
Hann: Þýskar stelpur eru forljótar, þær líta allar út eins og hrossaskýtur!
Ég (heyrði ekki alveg nógu vel hvað hann sagði): Ha? ertu að kalla mig hrossaskýt?
Hann: Nei nei nei alls ekki! Ég sagði að þýskar stelpur væru eins og hrossaskýtur... þú ert alls ekki hrossaskýtur! Kannski belja bara...
Ég (heyrði mjög vel hvað hann sagði): Ha? Ertu að kalla mig belju?
Hann: já
Ég slæ hann í hausinn og segi honum að hann sé hálfviti
Hann: En beljur eru sætar! Ég elska beljur. Litla frænka mín er að læra að tala og hún er alltaf að segja muuuu og það er svo sætt. Ég eeeelska beljur!
Ég var ekki viss hvort ég ætti að hlæja eða forða mér...
Hafdís Pálsdóttir